Miðvikudaginn 28. september síðastliðinn voru haldnar Mega Menntabúðir.
Um 100 þátttakendur mættu og tóku virkan þátt í viðburðinum sem var sameiginlegt átak Menntamiðju, UT-torgs, Sérkennslutorgs, Náttúrutorgs, Tungumálatorgs, Nýsköpunartorgs, Stærðfræðitorgs, Rannum, Reykjavíkurborgar og Landskrifstofu eTwinning.
Alls fóru fram 21 mjög fjölbreyttar kynningarnar, þær voru eftirfarandi:
Ármann Halldórsson frá Verslunarskóla Íslands kynnti hermi- og hlutverkaleikinn Klappland.
Stefán Bergsson frá Skáksambandi Íslands kynnti verkefnið „Kennari verður skákkennari„.
Hróbjartur Árnason frá HÍ kynnti forritin Office Mix og Onenote Classroom.
Björn Leví Gunnarsson og Þröstur Bragason frá Menntamálastofnun kynntu Micro Bit smátölvuna.
Ásta Ólafsdóttir frá Réttarholtsskóla kynnti verkefnið „Creating games using Scratch„.
Guðmundína Arndís Haralsdóttir og Rósa Harðardóttir frá Kelduskóla og Langholtsskóla kynntu verkefnið „Book it„!
Bergþóra Þórhallsdóttir frá Kópavogsskóla kynnti forritið Keywe.
Hrefna Björk Sigurðardóttir og Anna Wahlström frá Leikskólanum Holti kynntu verkefnið „The four headed dragon„.
Sólveig Þórarinsdóttir frá Leikskólanum Ösp kynnti verkefnið „Kulturudveksling„.
Hlíf Magnúsdóttir frá Selásskóla kynnti verkefnið „Grimmi tannlæknirinn„.
Sigurþór Einarsson, kennaranemi við HÍ kynnti forritið Yammer.
Þorbjörg Guðmundsdóttir frá Akurskóla, Reykjanesbæ, kynnti danska Dúkkulísuverkefnið.
Ólöf Ágústína Stefánsdóttir frá Langholtsskóla kynnti hugleiðingar um textílmennt.
Björgvin Ívar Guðbrandsson frá Langholtsskóla kynnti Kvikukassa.
Margrét S. Björnsdóttir frá HÍ kynnti forritið GeoGebra.
Tinna Breiðfjörð Guðjónsdóttir frá Félagsmiðstöðinni Laugó kynnti óformleg UT-studd námskeið.
Erla Stefánsdóttir frá Mixtúra margmiðlunarveri SFS kynnti forritið Reco Live.
Hans Rúnar Snorrason frá Hrafnagilsskóla kynnti verkefnið „e-Window„.
Elín Þóra Stefánsdóttir frá Grunnskóla Bolungarvíkur kynnti verkefnin „e-Show„ og Username: children Password: right.
Salvör Gissurardóttir frá HÍ kynnti Office 365 forritin Forms, Sway og QR-kóða.
Hjördís Ýrr Sveinsdóttir frá Hraunvallaskóla kynnti verkefnið „Blastic„.
Í lok dags veittu Ágúst Hjörtur Ingþórsson og Guðmundur Ingi Markússon fulltrúar frá Landskrifstofa eTwinning ofangreindum eTwinning verkefnum gæðamerki eTwinning. Sérstök landsverðlaun voru veitt Grunnskóla Bolungarvíkur fyrir verkefnið Sound by sound step by step together, sem er samstarfsverkefni fjögurra landa og sameinar list, tónlist, leiklist og látbragðsleik.
Sjá nánar á vef Landskrifstofu eTwinning.
Þessa dagana heldur iNámskeið eTwinning námskeið fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Í boði eru tvö námskeið annars vegar staðnámskeið og hins vegar fjarnámskeið. Smelltu hér til að skoða auglýsinguna.
Myndirnar hér fyrir neðan voru teknar á Menntabúðunum